Jón Þórisson hefur verið ráðinn til Samson eignarhaldsfélags ehf. í sérverkefni í tengslum við fjárfestingar félagsins í fjármálafyrirtækjum, jafnt innlendum sem erlendum. Jón er fyrrum aðstoðarforstjóri Íslandsbanka hf. og lét hann af störfum hjá bankanum fyrr á þessu ári. Jón mun hefja störf hjá Samson síðar í mánuðinum.