Jón Örn Guðbjartsson hefur tekið við starfi sem markaðs- og samskiptastjóri Háskóla Íslands en hann starfaði áður sem fréttamaður á Stöð 2. Í starfinu felst yfirstjórn innri og ytri markaðs- og kynningarmála, fjölmiðlasamskipta, útgáfumála, viðburða og vefmála Háskóla Íslands.
Jón Örn sagði í samtali við vb.is “að Háskóli Íslands væri stærsta einstaka samfélag á landinu og innviðir hans væru að breytast. Allar breytingar skipta eðlilega miklu hvað varðar framtíð skólans og því mikið og áhugavert starf fyrir höndum. Það er mikil gróska í öllu starfi skólans og ekki síst vegna sameiningarinnar við Kennaraháskólann. Langtímamarkmið háskólans er að verða á meðal hundrað bestu háskóla í heimi og stefnan að ná því markmiði fyrir hundrað ára afmæli Háskóla Íslands árið 2011.”
Jón Örn útskrifaðist á árinu með MBA gráðu með áherslu á netviðskipti frá United International Business School í Barcelona auk MA gráðu í almannatengslum og viðskiptasamskiptum frá sama skóla. Þá hefur Jón Örn einnig MA gráðu í íslenskum bókmenntum og BA gráðu í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands.
Jón Örn hefur starfað við markaðsstjórn og almannatengsl í rúman áratug, m.a. hjá Streng hf, Landsteinum, Hugviti hf. og EC Software. Hann hefur einnig starfað við markaðs-, rekstrar- og upplýsingatækniráðgjöf auk þess að starfa sem blaða- og dagskrárgerðarmaður. Samhliða sviðsstjórastarfi hjá markaðs- og samskiptasviði Háskóla Íslands sinnir Jón Örn stundakennslu við MBA deild United International Business School, m.a. á sviði netmarkaðssetningar og upplýsingamála. Jón Örn er kvæntur Rut Gunnarsdóttur lögfræðingi hjá Fjármálaeftirlitinu og eiga þau saman tvö börn, en fyrir á Jón Örn tvær dætur.