Michale Sachs hefur verið ráðinn markaðsstjóri hjá Icelandic Glacial og Daniel Gadomski forstöðumaður innlendrar starfsemi hjá fyrirtækinu. Fram kemur í tilkynningu frá Icelandic Glacial að þeir búi báðir að mikilli reynslu í erlendum drykkjavörugeira. Sachs er einn stofnandi fyrirtækis sem framleiðir vítamínbætta vatnið Code Blue Recovery en áður vann hann hjá Bacardi í Bandaríkjunum.

Í tilkynningu er haft eftir Jóni Ólafssyni, forstjóra og stofnanda Icelandic Glacial, að fengur sé í ráðningum þeirra og hafi hann væntingar um að þeir fleyti fyrirtækinu inn á nýjar brautir.

Vatn Icelandic Glacial er úr lind í Ölfusinu og tappað á flöskur í landi Hlíðarenda við Þorlákshöfn. Þaðan er það sent víða um heim.