Stjórn Byrs hefur ákveðið að framlengja ráðningu Jóns Finnbogasonar sem sparisjóðsstjóra Byrs en hann tók við starfinu í nóvember sl. þegar Ragnar Z. Guðjónsson, þáverandi sparisjóðsstjóri bað um tímabundið leyfi frá störfum.

Í tilkynningu frá Byr kemur fram að Ragnar Z. hefur sagt upp störfum hjá Byr og að ekki hafi verið gerður sérstakur starfslokasamningur við hann.

Þá má geta þess að í Viðskiptablaðinu á morgun verður ítarlegt viðtal við Jón Finnbogason, nýjan sparisjóðsstjórra Byrs.