Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjaframleiðandans Össurar, er maður ársins í viðskiptalífinu 2008 í kosningu Markaðarins, viðskiptablaði Fréttablaðsins.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag, þriðjudag.

Í umsögn um Jón segir meðal annars að hann hafi stýrt fyrirtækinu vel og fest það í sessi sem helsta stoðtækjafyrirtæki heims.