Viðskiptaráðherra hefur skipað Jón Sigurðsson, hagfræðing og fyrrum bankastjóra Norræna fjárfestingabankans, í stjórn Fjármálaeftirlitsins í stað Lárusar Finnbogasonar. Að öðru leyti helst stjórn Fjármálaeftirlitsins óbreytt.

Lárus Finnbogason löggiltur endurskoðandi, sem verið hefur formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins frá 1. janúar 2007, óskaði eftir því að láta af stjórnarsetu við árslok. Lárus hefur verið í stjórn Fjármálaeftirlitsins frá því að eftirlitið tók til starfa árið 1999 og hefur hann tekið virkan þátt í mótun þess bæði sem aðalmaður í stjórn og sem formaður stjórnar.

Sjá nánar fréttatilkynningu á heimasíðu Viðskiptaráðuneytisins:

http://www.vidskiptaraduneyti.is/Forsida_IVR/nr/2527