Skráning félagsins af markaði er rökrétt skref í áframhaldandi endurskipulagningu félagsins,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group í tilkynningu frá félaginu.

Hann segir að síðustu mánuði hafi verið unnið markvisst að endurskipulagningu fjárfestingasafns og reksturs FL Group, með það markmið að styrkja fjárhagsstöðu félagsins og veita því stöðugleika.

„Við teljum að sem óskráð félag muni FL Group fá aukið svigrúm og fleiri tækifæri til að efla rekstur félagsins og kjarnafjárfestingar félagsins á banka-, trygginga- og fasteignamarkaði ásamt því að styðja við fjárfestingaverkefni í óskráðum félögum.“