Jón Sigurðsson, sem verið hefur aðstoðarforstjóri FL Group frá árinu 2006, hefur tekið við starfi forstjóra félagsins af Hannesi Smárasyni, sem lætur af störfum. Hannes verður áfram í hópi stærstu hluthafa FL Group og mun taka sæti í stjórn félagsins segir í tilkynningu.

Þá er stefnt að því að félag í eigu Hannesar kaupi 23% eignarhlut í Geysi Green Energy af FL Group. Eignarhlutur FL Group í Geysi eftir viðskiptin yrði því 20,0%. Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group segir í tilkynningu:

“Samhliða kaupum á fasteignafélögum sem kynnt eru í dag og þeirri hlutafjáraukningu sem framundan er, hefur Hannes Smárason ákveðið að láta af starfi sínu sem forstjóri  félagsins. Full sátt er um þau starfslok og mun hann  taka sæti í stjórn félagsins og styðja við vöxt FL Group með þekkingu sinni og reynslu.

FL Group hefur undir stjórn Hannesar náð miklum árangri og hafa umsvif félagsins margfaldast í stjórnartíð hans. Á þessum tímamótum er ánægjulegt að tilkynna um ráðningu Jóns Sigurðssonar í starf forstjóra, sem gegnt hefur lykilhlutverki í félaginu síðastliðin tvö ár.“

Hannes Smárason, fyrrum forstjóri FL Group: "Með þessum breytingum í eignarhaldi FL Group tel ég eðlilegt að ég láti af starfi mínu sem forstjóri félagsins. Á þeim tíma sem ég heft gegnt starfi forstjóra FL Group hefur félagið tekið miklum breytingum, frá því að vera lítið fjárfestingafélag í að vera öflugt alþjóðlegt félag með yfir 400 milljarða króna í heildareignir og um 4.000 hluthafa. Ég mun taka sæti í stjórn FL Group og jafnframt koma að Geysi sem kjölfestufjárfestir.

Samstarf okkar Jóns Sigurðssonar hefur verið einstaklega gott. Ég er viss um að FL Group mun dafna vel undir hans stjórn og ég hlakka til að vinna með honum áfram að málefnum félagsins.“

Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group: segir í tilkynningu: "Í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á hluthafahóp félagsins er ánægjulegt að fá tækifæri til að taka við starfi forstjóra FL Group. Við munum áfram stefna að því að efla eignasafn félagsins og fjárhagslegan styrk, þannig að FL Group geti skilað góðri ávöxtun til hluthafa sinna. Í samvinnu við góðan hóp stjórnenda munum við kappkosta að efla félagið enn frekar og styðja við okkar lykilfjárfestingar, ásamt því að sýna aðhald í rekstri.“

Um Jón Sigurðsson

Jón Sigurðsson hóf störf hjá FL Group í september 2005, sem einn af framkvæmdastjórum félagsins og var ráðinn aðstoðarforstjóri félagsins í desember 2006. Jón starfaði áður hjá Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka. Jón er B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Jón er varaformaður stjórnar Glitnis banka, stjórnarmaður í Tryggingamidstodinni og í Hitaveitu Suðurnesja.