„Grátlegt er að sjá í hvaða farveg umræða um málið er að falla,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI) á vef samtakanna um málefni Verne Holding.

Jón Steindór segir að í langan tíma hafi staðið yfir undirbúningur að því að reisa gagnaver á Suðurnesjum en Verne Holding stendur að verkefninu.

Hann segir jafnframt að Samtök iðnaðarins hafi stutt með ráðum og dáð að af þessu verði en verkefnið sé kærkomin fjárfesting á nýju sviði iðnaðar og þjónustu og ekki veiti af slíku um þessar mundir.

„Samtök iðnaðarins tóku því líka fagnandi þegar Magma Energy fjárfesti hér á landi. Í báðum þessu tilvikum bregður svo við að á síðustu metrum þeirra er reynt að bregða fæti fyrir verkefnin og þeir sem að þeim standa gerðir tortryggilegir,“ segir Jón Steindór.

„Annað hvort vegna þess að þar séu á ferð vafasamir útlendingar eða íslenskir aðilar sem ekki megi semja við af einhverjum ástæðum.“

Jón Steindór rifjar upp að um leið og iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, hafi lagt fram og mælt fyrir frumvarpi til laga um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ hafi margir stigið á stokk, innan og utan þings og innan og utan stjórnarflokkanna.

„Erindi þeirra var helst það að nokkrir af eigendum Verne Holdings ehf. væru þeim ekki þóknanlegir og þess vegna ekki rétt að gera við þá fjárfestingarsamning þann sem frumvarpið gerir ráð fyrir,“ segir Jón Steindór.

„Einn þeirra hefur unnið sér það til óhelgi að hafa tekið virkan þátt í störfum annars stjórnarflokksins. Það virðist engu skipta að hann hefur verið farsæll frumkvöðull og fjárfestir um margra ára skeið. Annar er athafnamaður sem jafnan er talinn í hópi svokallaðra útrásarvíkinga.“

Sjá nánar á vef SI.