Dr. Jón Þór Sturluson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME). Hann var valinn úr hópi 15 umsækjenda að undangengnu ítarlegu ráðningarferli. Enginn starfar í dag sem aðstoðarforstjóri FME.

Fram kemur í tilkynningu um ráðninguna að Jón Þór lauk grunn- og meistaraprófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og síðar doktorsprófi frá Viðskiptaháskólanum í Stokkhólmi (Stockholm School of Economics). Hann vann um árabil við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, var dósent við Háskólann á Bifröst og hefur síðustu ár unnið sem dósent við Háskólann í Reykjavík. Jón Þór sat í bankaráði Seðlabanka Íslands um tveggja ára skeið, var aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra og ráðgjafi utanríkisráðherra í efnahags- og ríkisfjármálum.

Fram kemur í tilkynningu að ákvörðun um ráðningu aðstoðarforstjóra liggur hjá forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Arnór Sighvatsson, fulltrúi Seðlabanka Íslands í stjórn Fjármálaeftirlitsins, kom að ráðningarferlinu undir lok þess. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður, kom ekki að ráðningarferlinu enda var ljóst þegar umsóknarfrestur rann út að hann þekkti til nokkurra umsækjenda og væri vanhæfur til að taka þátt í afgreiðslu málsins.

Jón Þór hefur störf hjá FME um miðjan ágúst.