Jón Trausti Reynisson er hættur störfum sem framkvæmdastjóri DV. Jón Trausti er sonur Reynis Traustasonar fyrrum ritstjóra blaðsins.

Aug­lýs­inga­stjóri DV hef­ur einnig látið af störf­um, en hún var náinn samstarfsmaður þeirra feðga.

Þor­steinn Guðna­son stjórn­ar­formaður DV  mun sjá um framkvæmdastjórn fyrst um sinn.

Margir blaðamenn og starfsmenn DV hafa hætt störfum að undanförnu, meðal annars ritstjóri og aðstoðarritstjóri blaðsins.