Jón Trausti Reynisson er hættur störfum sem framkvæmdastjóri DV. Jón Trausti er sonur Reynis Traustasonar fyrrum ritstjóra blaðsins.
Auglýsingastjóri DV hefur einnig látið af störfum, en hún var náinn samstarfsmaður þeirra feðga.
Þorsteinn Guðnason stjórnarformaður DV mun sjá um framkvæmdastjórn fyrst um sinn.
Margir blaðamenn og starfsmenn DV hafa hætt störfum að undanförnu, meðal annars ritstjóri og aðstoðarritstjóri blaðsins.