Jón Viðar Guðjónsson, byggingartæknifræðingur, hefur verið ráðinn verkefnastjóri fasteigna Aztiq, fjárfestingafélags Róberts Wessman og Árna Harðarsonar. Hans fyrsta verk verður að verkefnastýra uppbyggingu stækkunar hátækniseturs við Sæmundargötu 15-19. Greint er frá ráðningu Jóns Viðars í fréttatilkynningu.

Jón Viðar er með BSc próf í byggingartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík. Á starfsferli sínum hefur hann aðallega unnið á sviði verkefna- og framkvæmdastjórnunar, hönnunarstjórnunar og umsjónar og eftirlits með verklegum framkvæmdum. Jón Viðar hefur undanfarin ár starfað hjá EFLU verkfræðistofu.

„Framkvæmdir við stækkun hátæknisseturs Alvotech í Vatnsmýri eru þegar byrjaðar. Viðbyggingin verður um 12.500 fermetrar sem næstum tvöfaldar aðstöðu Alvotech í Vísindagörðum HÍ í Vatnsmýri. Verklok eru áætluð í lok árs 2022.

Gert er ráð fyrir að starfsmannafjöldi Alvotech verði um 580 þegar hátæknisetrið verður tilbúið. Meirihluti starfsmanna verða sérfræðingar með háskólamenntun. Það er fasteignafélagið Eyjólfur ehf sem reisir húsið en félagið er í eigu Aztiq. Til að byrja með mun Alvotech leigja húsnæðið en til stendur að Alvotech eignist það þegar fram líða stundir,“ segir í fréttatilkynningunni.

Auk þess að stýra uppbyggingu hátæknisetursins mun Jón Viðar bera ábyrgð á samskiptum við verktaka og borgaryfirvöld í tengslum við uppbygginguna sem og önnur verkefni er lúta að fasteignaverkefnum Aztiq.