Jóna Soffía Baldursdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður upplýsingatæknisviðs hjá  Landsvirkjun. Upplýsingatækni leikur stórt hlutverk í rekstri Landsvirkjunar. Nýr forstöðumaður heyrir undir skrifstofu forstjóra og mun í samvinnu við stjórnendur taka þátt í að móta framsæknar upplýsingatæknilausnir fyrir fjölbreytta starfsemi innan Landsvirkjunar að því er kemur fram i fréttatilkynningu frá Landsvirkjun.

Jóna Soffía hefur verið forstöðumaður vefþróunar hjá Símanum frá árinu 2013. Hún hefur starfað hjá Símanum frá árinu 2006, fyrst við verkefnastjórnun og síðar sem deildarstjóri stjórnstöðvar og stjórnkerfa áður en hún tók við sem forstöðumaður vefþróunar. Áður en Jóna Soffía fór til Símans starfaði hún meðal annars við verkefnastjórnun og hugbúnaðarráðgjöf hjá Högum hf. og Hug hf. og við flutningastýringu hjá Samskipum.

Jóna Soffía er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og rekstrarfræðingur frá Samvinnuháskólanum á Bifröst. Hún  er gift Bjarka Jóhannssyni og eiga þau tvær dætur.