Jóna Finndís hefur verið ráðin í starf áhættustjóra hjá Stapa lífeyrissjóði, en hún gegndi áður starfi sjóðstjóra hjá sjóðnum.

Áhættustjóri heyrir beint undir stjórn sjóðsins og hefur yfirumsjón með allri áhættustýringu og eftirliti hjá sjóðnum. Jóna Finndís er með doktorsgráðu í verkfræði og hefur auk þess lagt stund á fjármálafræði og er með próf í verðbréfaviðskiptum.