Jónas Guðbjörnsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri HB Granda. Jóhann Sigurjónsson, fráfarandi fjármálastjóri, lætur nú af störfum að eigin ósk eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Jóhann hefur verið fjármálastjóri félagsins frá október 2002 og hverfur nú til annarra verkefna.

Jónas er löggiltur endurskoðandi og hefur undanfarið starfað sem fjármálastjóri Kjalars hf. Áður var Jónas fjármálastjóri Olíufélagsins, en þar áður vann hann sem endurskoðandi hjá Deloitte.