Jónas Kristjánsson hefur verið ráðinn ritstjóri DV að því er segir í frétt á Vísi. Starfsmönnum var kynnt ráðning Jónasar fyrir stundu. Jónas hefur störf um miðjan apríl og mun starfa við hlið Mikaels Torfasonar. Mikael hefur ritstýrt DV einn frá Því Illugi Jökulsson hætti og tók við útvarpsstjórn á Talstöðinni.