Jónína S. Lárusdóttir, sem hefur verið framkvæmdastjóri lögfræðisviðs síðan 2010, mun láta af störfum föstudaginn 13. september næstkomandi. Jónína hefur jafnframt setið í framkvæmdastjórn bankans í níu ár.

Í fréttatilkynningu um starfslokinn er haft eftir Benedikt Gíslasyni bankastjóra Arion banka að að hafi verið mikill fengur fyrir Arion Banka að hafa notið reynslu og þekkingar Jónínu síðastliðin níu ár.

„Ég vil þakka henni góð störf í þágu bankans og óska henni velfarnaðar í framtíðinni,“ er haft eftir Benedikt.