Beringer Finance AB í Stokkhólmi hefur keypt hluta af rekstri sænska ráðgjafafyrirtækisins ScandCap og eignast því rekstur félagsins á Íslandi. ScandCap opnaði skrifstofu í Reykjavík fyrr á árinu sem sérhæfir sig í verkefnum tengdum fjárfestingum erlendra aðila á Íslandi.

Beringer Finance AB er sænskt fjármálaráðgjafarfyrirtæki með höfuðstöðvar í Stokkhólmi en sinnir verkefnum tengdum ráðgjöf við kaup, sölu, sameiningar og fjármögnunar í Norður Evrópu. Jónmundur Guðmarsson fór fyrir starfsemi ScandCap á Íslandi og mun stýra starfsemi Beringer Finance hér á landi.