J&L ehf, sem rekur auglýsingastofuna Jónsson & Le'macks, hagnaðist um rúmlega 700 þúsund krónur í fyrra. Árið 2013 var hagnaðurinn tæplega 14 milljónir.

EBITDA fyrirtækisins helmingaðist árið 2014 frá því sem hún var árinu áður, eða úr 40,5 milljónir í 22,9 milljónir. Skammtímalán Jónsson & Le'macks jukust um 12,2 milljónir króna á síðasta ári, en fyrirtækið fjárfesti í rekstrarfjármunum fyrir um 9 milljónir. Eigið fé fyrirtækisins var 27,7 milljónir króna í lok síðasta árs og var eiginfjárhlutfallið um 11%.

Agnar Tryggvi Lemacks er framkvæmdastjóri Jónsson & Le'macks.