Í samræmi við tilmæli félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur og samkomulags félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Íbúðalánasjóðs og Reykjavíkurborgar hefur verið ákveðið að auka þjónustu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, vegna núverandi aðstæðna í efnahagslífi þjóðarinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu.
Þar kemur einnig fram að fjármagn hefur verið tryggt til að efla þjónustuna.
„Það er verkefni Ráðgjafarstofu að aðstoða þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum og er verið að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu hennar,“ segir í tilkynningunni.
Starfsmönnum verður fjölgað af þessu tilefni og opnunartími lengdur. Samstarf verður eflt við Velferðarsvið Reykjavíkurborgar um þjónustu. Í framhaldinu er verið að kanna frekari leiðir til að efla og styrkja þjónustuna almennt og á vettvangi sveitarfélaga við þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum.