Þjónusta Viðskiptavefsins hefur verið aukin til mikilla muna undanfarið. Nú er hægt að fá upplýsingar um gengi fyrirtækja í Kauphöll Íslands með 15 mínútna seinkun á vefnum. Einnig geta lesendur tjáð sig um einstakar fréttir kjósi þeir svo og undirgangist skilmála sem um það eru settir.

Sömuleiðis hefur leitarvélin á vefnum verið endurbætt til mikilla muna og léit gert einfaldari og skilvirkari. Sömuleiðis geta lesendur fengið upp erlenda viðskiptamiðla í einni sjónhendingu.

Einnig hefur verið bætt við enskri fréttaþjónustu í samstarfi við IFN.