Þjónusta Viðskiptavefsins hefur verið aukin til mikilla muna undanfarið. Nú er hægt að fá upplýsingar um gengi fyrirtækja í Kauphöll Íslands með 15 mínútna seinkun á vefnum. Einnig geta lesendur tjáð sig um einstakar fréttir kjósi þeir svo og undirgangist skilmála sem um það eru settir.

Sömuleiðis hefur leitarvélin á vefnum verið endurbætt til mikilla muna og léit gert einfaldari og skilvirkari.

Framundan er að bæta við enskri fréttaþjónustu í samstarfi við IFN en það verður kynnt nánar síðar.