Þjónustudeildir Ingvars Helgasonar hf. og Bifreiða og landbúnaðarvéla hf. hafa verið sameinaðar undir einu nafni, Bif. Fyrr í vetur var starfsemi félaganna sameinuð á einn stað þegar B&L flutti starfsemi sína að Sævarhöfða þar sem Ingvar Helgason var fyrir með sína starfsemi.

Þjónustudeildin sameinar þjónustu fyrir Subaru, Nissan, Opel, GM, BMW, Hyundai, Renault og Land Rover. Að sögn Lofts Ágústssonar markaðsstjóra félagsins er það hagræði að skrifa út reikninga í einu nafni nú þegar eitt verkstæði þjónustar þessa bíla.

Bílasalan er áfram rekin undir sitt hvorri kennitölunni eins og var áður en félögin voru sameinuð.