Útflutningur á þjónustu á fjórða ársfjórðungi 2009 var samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands 71,1 milljarður en innflutningur á þjónustu 63,1 milljarður króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á fjórða ársfjórðungi var því jákvæður um 8,0 milljarða króna.

Samgöngur er stærsti þjónustuliðurinn og mestur afgangur varð vegna þeirrar þjónustu, eða um 10,7 milljarðar en afgangur vegna annarar þjónustu reyndist vera um 8,1 milljarður. Aftur á móti var halli á ferðaþjónustu um tæpa 10,8 milljarða.

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar er því útflutningur á þjónustu á árinu 2009 280,4 milljarðar en innflutningur á þjónustu 241,1 milljarður. Þjónustujöfnuður við útlönd á árinu 2009 var því jákvæður um 39,3 milljarða. Samgöngur skiluðu 35,9 milljarða afgangi á árinu 2009 samkvæmt bráðabirgðatölum og önnur þjónusta skilaði 11 milljarða afgangi. Á móti kom að halli var á ferðaþjónustu um 7,6 milljarða.