Útflutningur á þjónustu á öðrum ársfjórðungi var samkvæmt bráðabirgðatölum 70,4 milljarðar en innflutningur á þjónustu 63,2 milljarðar.

Þjónustujöfnuður við útlönd á öðrum ársfjórðungi er því jákvæður um 7,2 milljarða króna samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Samgöngur vega mest þjónustuliða og mestur afgangur varð vegna þeirrar þjónustu, tæpir 7,3 milljarðar. Önnur þjónusta en samgöngur og ferðaþjónusta skilaði 2,0 milljarða afgangi, en á móti kom halli á ferðaþjónustu um 2 milljarða.