Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur ákveðið að sameina starfsemi Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands eigi síðar en um næstu áramót að því er kemur fram í tilkynningu.

Ráðherra fól samráðshópi, sem skipaður var tveimur fulltrúum dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins ásamt settum ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra Þjóðskrár og forstjóra Fasteignaskrár, að skoða hagkvæmni sameiningarinnar. Það var sameiginleg tillaga hópsins að sameina starfsemi Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands í eina stofnun. Miðað er við að réttindi og kjör starfsmanna haldist óbreytt við þessa breytingu og að hin sameinaða starfsemi verði í Borgartúni 21 þar sem Fasteignaskráin er til húsa segir í tilkynningu.

Ráðherra kynnti þessa ákvörðun á fundi ríkisstjórnar í morgun og á starfsmannafundum í Þjóðskrá og Fasteignaskrá síðdegis. Ráðherra hyggst setja á fót stýrihóp sem skipaður verður fulltrúum dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands til að vinna að framgangi sameiningarinnar í góðu samstarfi við starfsfólk Þjóðskrár og Fasteignaskrár. Ekki kemur fram hver mun stýra hinu sameignaða fyrirtæki en Haukur Ingibergsson, forstjóri Fasteignaskrár, hlýtur að vera líklegur kandidat.

Mikilvægt er að raska í engu undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslu á vegum Þjóðskrár og verður lagt fyrir stýrihópinn að miða sína vinnu við það.