Gabler Rådgivning AS, félag í eigu nýs varaformanns stjórnar VÍS hefur keypt rúmlega 1,6 milljón hluti í tryggingafélaginu á verðinu 8,93 krónur á hlut. Samtals keypti félagið 1.623.740 hluti í VÍS og var því heildar upphæð kaupanna um 14,5 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar

Jostein var kjörinn varaformaður í stjórn VÍS á hluthafafundi þann 10. nóvember sl., en miklar ólgur voru í eigendahópi VÍS fyrir fundinn.

Hlutabréf í VÍS hafa hækkað sem nemur 0,68% það sem af er degi í 145 milljón króna viðskiptum.