Jostein Sætrenes hefur verið ráðinn forstjóri KredittBanken í Álasundi. Sætrenes er í dag forstjóri skipafélagsins Bourbon Offshore Norway AS. Áður var hann fjármálastjóri Havila Supply, vann hjá Fokus Bank og gegndi ýmsum störfum í skipaiðnaðinum.

Sætrenes tekur við stöðu forstjóra KredittBanken í ágúst og mun kom í stað Frank O. Reite, sem nýverið var gerður að framkvæmdastjóra yfir starfsemi Íslandsbanka í Noregi og á sæti í framkvæmdastjórn Íslandsbanka.