Óskar Sigurðsson hæstaréttarlögmaður og aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands hefur gengið til liðs við LEX lögmannsstofu. Óskar hefur á undanförnum árum rekið JP lögmenn í samstarfi við aðra en eignaðist JP lögmenn að fullu fyrr á þessu ári. Nú hafa náðst samningar um samruna JP lögmanna og LEX.

Helstu sérsvið Óskars eru eignaréttur, verktakaréttur, bygginga- og skipulagsmál og mál er varða kaup og sölu fasteigna, en hann hefur um árabil verið þekktur málflutningsmaður.

Sameinast einni stærstu lögmannstofu landsins

„Óskar er fæddur árið 1972 og lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1997. Hann hlaut réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi ári síðar og fyrir Hæstarétti árið 2005, “ segir í fréttatilkynningu um sameininguna.

„Óskar hefur kennt eigna- og kröfurétt við Háskóla Íslands frá árinu 1998. Óskar er kvæntur Elísabetu Kristjánsdóttur, íþrótta- og heilsufræðingi, og eiga þau þrjár dætur.

LEX er ein stærsta lögmannsstofa landsins og hefur aðsetur í Borgartúni 26 í Reykjavík. LEX lögmannsstofa á rætur að rekja til ársins 1959 en hefur verið starfrækt undir heitinu LEX frá árinu 1987.“

Leiðandi í eigna- og auðlindarétti

Gunnar Viðar hdl. stjórnarformaður LEX segir mikið ánægjuefni að fá Óskar til liðs við þá.

„LEX hefur verið leiðandi lögmannsstofa á sviði eigna- og auðlindaréttar á undanförnum áratugum og koma Óskars í okkar sterka hóp sérfræðinga er í takti við stefnu LEX um að vera fremsta lögmannstofa á Íslandi á þessu sviði,“ segir Gunnar Viðar.

Sífellt meiri krafa um hagkvæmni

„Sífellt meiri krafa er gerð um hagkvæmni og sérfræðiþekkingu í störfum lögmanna á Íslandi. Með því að ganga til liðs við LEX get ég boðið viðskiptavinum mínum upp á betri þjónustu á öllum meginsviðum lögfræðinnar,“ segir Óskar Sigurðsson hrl.

„Með því að sameina JP lögmenn og LEX gefst mér kostur á að taka þátt í stærri verkefnum en ég gæti ella sinnt. Þá opnast tækifæri fyrir mig að þjónusta breiðari viðskiptamannahóp og nýta betur sérfræðiþekkingu mína.“