Stjórn NOREX kaus í gær Jukka Ruuska, stjórnarformann NOREX, en Jukka er forstjóri HEX Integrated Markets. Á sérstökum stjórnarfundi Nordic Exchanges A/S, sem haldinn var í gær, var Jukka Ruuska kosinn í stjórn NOREX ásamt Jouni Torasvirta, forstjóra Kauphallarinnar í Helsinki, Henrik Paulsson, starfandi forstjóra Stockholmsbörsen og Gert Tiivas, framkvæmdarstjóra baltnesku deildarinnar.

Í kjölfar undirritunar nýs NOREX samstarfssamnings þann 7. apríl sl. varð HEX Integrated Markets hluthafi í Nordic Exchanges A/S. Kauphallirnar í Osló og Kaupmannahöfn seldu báðar 9% hlutafjár til HEX Integrated Markets og hlutafjáreign í Nordic Exchanges A/S skiptist nú þannig:

HEX Integrated Markets: 50% (að meðtöldu hlutafé sem var áður í eigu Stockholmsbörsen)
Oslo Børs: 23%
Copenhagen Stock Exchange: 23%
Kauphöll Íslands: 4%