„Sumrin eru besti tíminn hjá okkur á KFC og þá helst júlí, þá er sumar og sól og allir í fríi,“ segir Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri KFC á Íslandi spurð í hvaða mánuði ársins sé mest að gera hjá veitinga­staðnum KFC. Rólegasta tímann hjá þeim segir hún vera janúar:

„Hann er rólegastur hjá öllum skyndibitastöðum, þá er jólavísa, myrkur og allir blank­ir.“ Hún segir vinsælustu réttina á matseðlinum vera kjúk­lingaborgarana. En um helgar gerist annað en það er að sala á vængjum rýkur upp ef eitt ákveðið sjónvarpsefni er í gangi:

„Ef það er stór leikur í boltanum eða annar stór íþróttaviðburð­ur eins og landsleikur eða Ólympíuleikar þá fer salan á vængj­unum upp. Við finnum vel fyrir því,“ segir Kristín.