Í viðtali við Fox News talar leikkonan Julia Stiles afar vel um Ísland og segir landið eitt af uppáhaldsstöðum sínum.

Leikkonan Julia Stiles kom til Íslands þegar hún lék í myndinni „A Little Trip to Heaven“ sem Baltasar Kormákur leikstýrði. Julia hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum eins og „10 Things I Hate about You“ og „Silver Linings Playbook“.

Hún segir Ísland búa yfir miklum töfrum og að landið sé ótrúlega fallegt. Hún segir að nauðsynlegt að fara til Íslands á réttum tíma ársins því yfir vetrarmánuðina sé myrkur. Hún talar einnig um að margar hljómsveitir stoppi á Íslandi á leið sinni til Evrópu og að hún hafi hlustað á Damien Rice á Íslandi.

Spurð hvort hún hafi prófað einhvern framandi mat á Íslandi talar hún um harðfisk og segir hann grafinn ofan í jörðina þangað til hann er tilbúinn en þá er hann tekinn upp og étinn.

Viðtalið í heild sinni má lesa hér .