Júlíus Jónsson lét af störfum sem forstjóri HS Orku á gamlársdag. Frá uppskiptingu Hitaveitu Suðurnesja árið 2008 hefur hann gegnt starfi forstjóra bæði HS Orku og HS Veitna.

Hann hefur gengt starfinu frá 1. júlí 1992 þegar Ingólfur Aðalsteinsson, fyrsti forstjóri fyrirtækisins lét af störfum en hann hafði gengt starfinu frá stofnun fyrirtækisins, en Júlíus hóf störf hjá fyrirtækinu 1. október 1982. Ingólfur lést árið 2012, þá 88 ára að aldri.

Eins og VB.is hefur greint frá tekur Ásgeir Margeirsson við starfi forstjóra HS Orku en Júlíus mun framvegis gegna starfi forstjóra HS Veitna hf í fullu starfi.