Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson hefur nú sagt af sér. Hann tilkynnti þetta á borgarstjórnarfundi fyrir skömmu síðan.

Hann sagðist sleginn yfir umfjöllun Kastljóss um aflandsfélög og skattaskjól - en Júlíus var einn þeirra sem komu við sögu þar. Hann sagðist skilja þá reiði og og ólgu sem skjölin hafa kallað fram.

„Ég horfi líka til míns þáttar í því,” sagði hann, er hann sagði af sér.