Purpose heimstúr Justin Bieber hefst 9. september í Kórnum í Kópavogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu. Alls verða 19.000 miðar í boði.

Meðlimir aðdáendaklúbbs Justins Bieber fá tækifæri til að kaupa miða á tónleikana tveimur dögum áður en almenn sala hefst. Forsala aðdáendaklúbbsins hefst fimmtudaginn 17. desember kl. 16. Íslenskar forsölur fara fram daginn áður en almenn sala hefst, eða föstudaginn 18. desember kl. 10. Allar forsölurnar verða kynntar nánar á morgun, föstudag, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Almenn sala hefst svo laugardaginn 19. desember kl. 10 á Tix.is