Hagar, sem reka meðal annarra Bónus og Hagkaup, hafa stefnt hvort tveggja núverandi og fyrrverrandi eigendum Korputorgs í Grafarvogi, en félagið rekur verslun Bónus í húsinu.

Ástæða stefnunar eru vanefndir á samkomulagi um forkaupsrétt á húsnæði Bónuss, en félagið SMI ehf. seldi Korputorg ehf. sem heldur utan um húsnæðið í október síðastliðnum.

Bónus ætla ekki að loka

Hófst málflutningur fyrir Héraðsdómi á þriðjudag, en Finnur Árnason, forstjóri Haga segir félagið ekki ætla að loka versluninni í kjarnanum að því er Vísir greinir frá.

„Málið snýst um forkaupsrétt sem er skýlaus og fyrirvaralaus í leigusamningi sem er ekki virtur,“ segir Finnur. „Við gerum enga athugasemd við söluna á Korputorginu en eigum aftur á móti forkaupsrétt á þeim hluta sem snýr að Bónus og viljum fá að nýta hann.“

Öll starfsemi Ísam í húsið

Kaupandinn, félagið Kristinn ehf., móðurfélag heildverslunarinnar Ísam, hyggst flytja mestalla starfsemi fyrirtækisins í húsnæðið á næstu árum, en það á fyrirtækin Mylluna, Ora, Frón og Fastus. Kristinn er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu hennar, sem reka Ísfélag Vestmannaeyja.

Sævar Þór Ólafsson, framkvæmdastjóri Korputorgs ehf., segir að gert verði ráð fyrir að í húsnæðinu verði að hluta til smásala og blönduð starfsemi. „Ég á eftir að taka formlegar viðræður við Bónus en það er leigusamningur í gildi og við erum að leita að góðum og traustum leigutökum,“ segir Sævar Þór.

Erlendi sjóðurinn Calabry Trust er eigandi SMI, en þó ekki liggji fyrir upplýsingar um eignarhald hans, er stjórnarformaður þess Jákup á Dul Jacobsen, fjárfestir og stofnandi Rúmfatalagersins, en fyrrverandi framkvæmdastjóri SMI var Davíð Freyr Albertsson.