Fjármálaeftirlitið hefur kært félag og eiganda þess til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra fyrir meinta makraðsmisnotkun á skuldabréfamarkaði 22. september 2010. Þann dag hrundi nánast skuldabréfamarkaðurinn vegna mikillar lækkunar.

Höfðu áhrif á dagslokaverð

Fjármálaeftirlitiðfjármálaeftirlitið
Fjármálaeftirlitiðfjármálaeftirlitið
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)
Í tilkynningu FME kemur fram að eftir að lokunaruppboð hófst þann 22. september 2010 setti hinn kærði, fyrir hönd félags síns, inn lítil kauptilboð í nokkra flokka ríkistryggðra skuldabréfa á verði sem var hærra en síðasta viðskiptaverð.  „Öll tilboðin nema eitt urðu að viðskiptum en það ákvarðaði þó opinbert dagslokaverð þar sem um kauptilboð á hærra verði en síðasta viðskiptaverði var að ræða. Í athugun Fjármálaeftirlitsins kom í ljós að fjármálafyrirtæki hafði gert veðkall á félagið tvisvar þennan sama dag," segir í tilkynningunni.

Svo heldur áfram:

Með tilliti til þess hversu mikill verðmunur var á kauptilboðunum/viðskiptunum í lokunaruppboðinu og fyrri viðskiptum og með hliðsjón af því hversu lítil tilboðin voru sem og þeim veðköllum sem voru gerð á félagið taldi Fjármálaeftirlitið vera rökstuddan grun um að háttsemin fæli í sér markaðsmisnotkun og að hinir kærðu hefðu brotið gegn a-lið 1. tölul. 1. mgr. 117. gr. vvl.

Á við ríkistryggð skuldabréf

Í því tilfelli sem hér um ræðir áttu sér stað viðskipti og tilboð um viðskipti með nokkra flokka ríkistryggðra skuldabréfa. Þann 22. september 2010 urðu mikil viðskipti á skuldabréfamarkaði, dagsveltan náði sínu hæsta gildi frá október 2008 og verð lækkaði umtalsvert. Dagana áður hafði verð einnig lækkað en fram að þeim tíma hafði verð óverðtryggðra skuldabréfaflokka hækkað nær samfellt frá ársbyrjun 2010.

Það getur varðað sektum eða fangelsi allt að sex árum, liggi þyngri refsing ekki við broti samkvæmt öðrum lögum, að brjóta gegn lögum um markaðsmisnotkun. Með vísan til nefndra lagaákvæða og atvika málsins ákvað Fjármálaeftirlitið að vísa bæri málinu til ríkislögreglustjóra.