Miklar verðbreytingar hafa verið í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum samkvæmt könnun verðlagseftirlits ASÍ 12. ágúst 2013 og 2014. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ASÍ. Vinsæl matvara eins og MS súrmjólk hefur hækkað um 3-9% og kíló af Dansukker strásykri, um 6-71% á meðan Merrild mellemristet 103 kaffi hefur lækkað um 15-21%.

Verð hækkaði oftast á tímabilinu hjá Víði á þeim vörum sem til voru í báðum könnununum og einnig hafa Nettó og Iceland oftar hækkað verð en lækkað. Hagkaup, Fjarðarkaup, Bónus, Nóatún og Krónan hafa oftar lækkað verð en hækkað en Samkaup-Úrval hefur lækkað og hækkað verð næstum jafn oft.

Töluverðar verðhækkanir á mjólkurvörum í öllum verslunum

Næstum allar vörurnar í vöruflokknum, ostur, viðbit og mjólkurvörur hafa hækkað í verði hjá öllum verslunum síðan í fyrra. Sem dæmi um mikla hækkun má nefna að Húsavíkurjógúrt m/bláberjum 500 ml. hefur hækkað um 23% úr 222 kr. í 272 kr. hjá Fjarðarkaupum, um 10% úr 208 kr. í 228 kr. og hjá Iceland, um 9% úr 218 kr. í 238 kr.

Kaffi lækkar í verði

Dæmi um kaffi sem hefur lækkað í verði er Gevalia Original 500 gr. sem hefur lækkað í verði um 13% hjá Bónus, Krónunni og Fjarðarkaupum, um 10% hjá Nettó, og 7% hjá Samkaupum-Úrval og Hagkaupum. Einnig má nefna að Merrild kaffi hefur lækkað í verði hjá öllum verslunum um 15-21% og Maxwell House 500 gr. hefur lækkað um 5-14%. Aðeins kaffið frá Kaffitár Morgundögg 500 gr. hefur oftar hækkað í verði í verslunum.