Kaffihús Vesturbæjar opnaði í morgun en íbúar hverfisins hafa beðið opnunarinnar með mikilli eftirvæntingu.

Pétur Marteinsson, fyrrverandi knattspyrnumaður og einn eigenda kaffihússins, var í viðtali við Eftir vinnu, fylgirit Viðskiptablaðsins sem kom út í síðustu viku. „Ástæðan fyrir því að við réðumst í þetta er að við búum allir í hverfinu og þetta er eitthvað sem okkur fannst vanta. Grundvallarpælingin var að setja upp kaffihús og bistro þar sem fólk í hverfinu getur komið, hvort sem það er í morgunmat, hádegismat eða á kvöldin og fengið sér kaffi og kruðerí þess á milli.“

Grafarvogsbúar að sjálfsögðu velkomnir

Þetta verður hverfiskaffihús og þið stílið inn á Vesturbæinn. En væri ég velkominn á þriggja tonna Ford Explorer úr Grafarvogi?

„Já, en þú færð bara aðeins verri þjónustu,“ segir Pétur og brosir. „Nei nei, en þeir sem koma af Seltjarnarnesinu fá hins vegar bara Neskaffi á meðan Vesturbæingarnir fá eðalkaffi,“ bætir hann við og hlær. „Að sjálfsögðu eru allir velkomnir, útlendingarnir líka, þó að við séum fyrst og fremst að búa þennan stað til fyrir Vesturbæinn.“

Nánar er spjallað við Pétur í Eftir vinnu, fylgiriti Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .