Góðgerðasjóðurinn Macmillan Cancer Support hefur svipt hulunni af þremur nýjum ilmvötnum fyrir karla og konur sem eru sérstök fyrir þær sakir að kaffi er mjög ráðandi ilmur í vötnunum.

Talsmaður Macmillan, Kate Seymour, segir í tilkynningu að fólk elski lyktina af kaffi og því hafi verið ákveðið að búa til ilmvatn og rakspíra með kaffiilm. Þetta er óvenjulegur ilmur, en ilmvötnin verða ekki lengi í almennri sölu. Upplagið er takmarkað.

Ilmvötnin heita Coffeelicious, Macpresso og Mochamorning, en Macpresso er rakspíri fyrir karlmenn.