Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins (SA) minnti á í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna sem nú stendur yfir að meginmarkmið Seðlabanka Íslands sé, samkvæmt lögum, að stuðla að stöðugu verðlagi.

Þá sagði hann að með samþykki forsætisráðherra er Seðlabankanum heimilt að lýsa yfir tölulegu markmiði um verðbólgu og vísaði í lög um Seðlabankann.

Ingimundur sagði að fenginni reynslu af flotgengisstefnu Seðlabankans og í ljósi þeirrar stöðu, sem nú blasir við íslensku atvinnulífi, er nauðsynlegt að grípa til samhæfðra aðgerða bæði á sviði peningamála og ríkisfjármála.

„Því vil ég nota þetta tækifæri til þess að beina því til forsætisráðherra, hvort ekki sé nú tilefni til þess að ríkisstjórnin gefi út yfirlýsingu með skýrum og afgerandi hætti þess efnis, að unnið verði að því að uppfylla viðurkennd skilyrði um stöðugt verðlag, jafnvægi í ríkisfjármálum, stöðugleika í gengisskráningu og samhæfingu langtímavaxta, sem sett eru fyrir aðild að myntbandalagi Evrópu. Með samningi við Seðlabankann verði hafinn undirbúningur að nauðsynlegum aðgerðum til þess að ná niður verðbólgu, lækka stýrivexti og tryggja aðhald í opinberum rekstri, þannig að settum markmiðum verði náð,“ sagði Ingimundur.

Þá sagði Ingimundur það brýnt að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans og gera honum kleift að tryggja íslenskum fjármálastofnunum aðgang að lausafé og lánsfé á eðlilegum kjörum, svo koma megi í veg fyrir stöðvun nýrra fjárfestinga, sem byggja á fjármögnun íslenskra banka.

„Að öðrum kosti er hætt við því, að framfarir stöðvist í íslensku atvinnulífi um langa hríð og þungi fjárfestinga í landinu verði einungis á vegum hins opinbera eða þeirra aðila, sem aflað geta lánsfjár án atbeina innlendra fjármálafyrirtækja,“ sagði Ingimundur og bætti því við að íslensku atvinnulífi væri nauðsynlegt, að gripið verði til aðgerða sem allra fyrst.

„Dragist það úr hófi, mun það ef að líkum lætur brjótast undan oki hárra vaxta og stöðugra gengissveiflna með þeim aðferðum, sem tiltækar eru,“ sagði Ingimundur.

Þá sagði hann þá hættu blasa við að íslensk fyrirtæki, sem að stórum hluta starfa á erlendum mörkuðum, muni sjá hag sínum betur borgið með því að flytja starfsemi sína til annarra landa, þar sem stöðugleiki er meiri og rekstrarumhverfi hagfelldara. Hann sagði að óbreytt ástand væri ekki unnt að una og er því nauðsynlegt að fara yfir allar hugmyndir um umbætur á núverandi aðstæðum.