Davíð Þorláksson forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins kallar Íbúðalánasjóðs nátttröll sem leiti sér tilgangs í pistli í Viðskiptablaði dagsins .

„Íbúðalánasjóður hefur nú riðið fram á völlinn með nýjar lausnir á vandamálum í húsnæðismálum,“ segir Davíð í pistlinum sem ber yfirskriftina Nátttröll leitar tilgangs. „Þetta er sama stofnun og leiddi húsnæðisbólu í aðdraganda hrunsins með því að kynna 90% lán.“

Veltir hann því upp af hverju stofnunin sé nú komin með greiningardeild í húsnæðismálum til viðbótar við að bjóða upp á lán í samkeppni við banka og lífeyrissjóði.

„Nýjasta útspil Íbúðalánasjóðs er ný deild leigumarkaðsmála. Helsta verkefni deildarinnar er sagt vera að vinna að því að gera leigumarkaðinn að raunverulegum valkosti fyrir fólk,“ segir Davíð segist síðan ætla að einfalda lífið fyrir þessa nýju deild og benda á hina augljósu lausn.

„Það eina sem getur auðveldað fólki að kaupa eða leigja er aukið framboð. Þar stendur fyrst og fremst á Reykjavíkurborg sem þarf að láta skipulagið virka betur svo fleiri lóðir undir íbúðarhúsnæði verði í boði og að uppbyggingin taki styttri tíma.“

Segir markaðinn leysa vandann ef hið opinbera sé ekki að þvælast fyrir

Segir Davíð að þvert á það sem sumir sem agnúist hafi út í vaxandi hlut stóru leigufélaganna þá sé staðreyndin sú að þau hafi aukið framboð á leiguíbúðum og aukið fagmennsku á leigumarkaði með betri þjónustu, viðhaldi og betri skattskilum en hjá minni aðilum áður.

„Allt er þetta til hagsbóta fyrir leigjendur. Markaðurinn leysir vandann að svo miklu leyti sem hið opinbera stendur ekki í vegi fyrir því,“ bendir Davíð á.

„Vandséð er hver aðkoma Íbúðalánasjóðs á að vera að þessu. Ríkið þreytist aldrei við að reyna að hafa afskipti af því sem ætti að vera frjáls markaður, þótt slíkar tilraunir misheppnist oft. Vandamálið er að lausnir ríkisins á vandamálum skapa yfirleitt stærri vandamál en þeim er ætlað að leysa.“