Samkvæmt niðurstöðum Ferðamannapúlsins í janúar þá eru Bandaríkjamenn ánægðastir með dvöl sína á Íslandi og mældust efstir með 84,5 stig. Bretar mældust í öðru sæti með 83,8 stig, Danir í þriðja með 83,6 stig, Kanadabúar í fjórða með 82,8 stig og Ástralar í fimmta með 82,4 stig. Á hinum endanum mældist Ferðamannapúlsinn lægstur meðal ferðamanna frá Kína 74,7 stig. Ferðamenn 69 þjóða svöruðu að þessu sinni Ferðamannapúlsinum sem mælir heildarupplifun ferðamanna af Íslandsferðinni og fjórar af fimm efstu þjóðunum eru enskumælandi.

Ferðamannapúlsinn byggir á fimm spurningum sem mæla heildaránægju ferðamanna, hvort ferðamenn telji að Íslandsferðin hafa verið peninganna virði, hvort hún hafi staðist væntingar þeirra, líkur á meðmælum og mati ferðamanna á gestrisni Íslendinga. Í janúar mældist Ferðamannapúlsinn með 83,0 stig af 100 mögulegum og hækkar hann um 0,5 stig á milli mánaða.

Þegar litið er til undirþátta Ferðamannapúlsins mældust fjórir af fimm þeirra hærri í janúar en mánuðinum áður. Þátturinn sem mælir hvort ferðin hafi uppfyllt væntingar ferðamanna hækkaði um 1,1 stig, líkur á meðmælum um 1,0 stig, mat á gestrisni Íslendinga um 0,7 stig og hvort ferðin hafi verið peningana virði um 0,5 stig. Þátturinn sem mælir heildaránægju lækkaði um 0,3 stig.