Kanadíska fyrirtækið Methanex fjárfestir í íslenska eldsneytisfyrirtækinu Carbon Reycling International (CRI) sem framleiðir endurnýjanlegt metanól úr útblæstri, vatni og raforku. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í dag. Þar kom fram að Methanex leggur til nýtt hlutafé að verðmæti 5 milljónir bandaríkjadala, eða því sem nemur 600 milljónum íslenskra króna. Fyrirtækið áformar jafnframt aukna fjárfestingu til að styðja áframhaldandi vöxt CRI. Methanex verður einn af stærstu hluthöfum CRI og tekur sæti í stjórn fyrirtækisins.

CRI framleiðir og selur endurnýjanlegt metanól á Íslandi og víðar í Evrópu, undir vörumerkinu  Vulcanol.  Vulcanoli er blandað í bensín eða notað við framleiðslu á öðru eldsneyti, þar á meðal lífdísil. Verksmiðja CRI hefur verið vottuð af stofnuninni International Sustainability and Carbon Certifcation system (ISCC) og telst Vulcanol endurnýjanlegt og sjálfbært eldsneyti sem skilar lágmarks sótspori við framleiðslu og notkun, án áhrifa á lífríki og umhverfi.

Í tilkynningu segir að Methanex og CRI hyggi á nánara samstarf um að reisa stærri eldsneytisverksmiðjur hér á landi með tækni CRI, sem nýta munu innlenda raforku og endurvinna koltvísýring.  Samstarfið mun nýta sérhæfingu Methanex á sviði framleiðslu, dreifingu og sölu metanóls um allan heim og einstaka þekkingu CRI á sviði sjálfbærrar framleiðslu og markaðssetningar endurnýjanlegs eldsneytis. Fyrirtækin telja mikið sóknarfæri á markaði fyrir eldsneyti blandað metanóli í Evrópu.

„Við erum mjög stolt af því að fjárfesta í CRI, sem er leiðandi á sviði framleiðslu endurnýjanlegs metanóls og að geta gert fyrirtækinu kleyft að vaxa enn hraðar,“ segir John Floren, forstjóri Methanex í tilkynningu. „Örasti vöxtur í spurn eftir metanóli á heimsmarkaði er til eldsneytisnota.  Við teljum að endurnýjanlegt metanól muni knýja frekari vöxt á þeim markaði. CRI teymið hefur þegar þróað nýja tækni, starfrækir verksmiðju og markaðssetur metanól með góðum árangri. Þessi árangur undirstrikar verðmæti þessarar fjárfestingar,” segir Floren jafnframt.

Methanex er skráð kanadískt almenningshlutafélag með höfuðstöðvar í Vancouver og er stærsti seljandi metanóls í heiminum. Hlutabréf Methanex eru skráð í kauphöllinni í Toronto undir heitinu ”MX” og á NASDAQ markaðnum í Bandaríkjunum undir heitinu ”MEOH”.