Kanadastjórn hyggst fylgja fordæmi Bandaríkjamanna og leggja bílaiðnaðinum til fjármagn. Samkvæmt frétt Reuters ætla Kanadamenn að lána bílaiðnaðinum fjóra milljarða Kanadadala, (3,3 milljarða Bandaríkjadala.)

Bílaiðnaðurinn hefur mikið að segja fyrir efnahag Toronto. Ef hann fer á  hausinn þá munu 600.000 Kandamenn missa vinnuna.