Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ, kannast ekki við það að útgerðin hafi skilað 90 milljarða króna hagnaði á ári sem frambjóðendur til Alþingis hafa talað um í aðdraganda kosninga.

Fram kemur í Fiskifréttum sem fylgdu Viðskiptablaðinu í dag að sumir frambjóðendur til Alþingis fyrir þessar kosningar hafa farið mikinn í lýsingum sínum á hreinum hagnaði útgerðarinnar sem þeir telji nauðsynlegt að gera upptækan að miklu eða öllu leyti. Þar hafi m.a. verið fullyrt oftar en einu sinni upp á síðkastið að hreinn hagnaður útgerðarinnar sé 90 milljarðar króna á ári. Skilja megi fullyrðingar frambjóðenda sem svo að hagnaðurinn renni óskiptur í vasa útgerðarmanna til persónulegra nota.

Sveinn Hjörtur telur í samtali við Fiskifréttir að hið rétt í málinu sé að svokölluð EBIDTA eða verg hlutdeild fjármagns í fiskveiðum árið 2011 hefði numið 41,9 milljörðum króna samkvæmt opinberum tölum. Þá væri eftir að draga frá afskriftir og vexti. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hefði hreinn hagnaður útgerðar fyrir skatta verið 23,2 milljarðar árið 2011. Þá ætti eftir að borga af því 20% tekjuskatt.

Í Fiskifréttum er bent á að hagnaður fiskvinnslu fyrir skatta var 21,7 milljarðar króna á árinu 2011, en nýrri tölur eru ekki tiltækar.

Nánar má lesa um málið í Fiskifréttum. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum tölublöð.