Nýherji hélt sumarpartý í síðustu viku, þar sem starfsmenn fyrirtækisins, sem og starfsmenn dótturfélaganna TM Software, Applicon og Tempo Hátíðin var haldin í Hvalasafninu og kepptu forsvarsmenn nokkurra viðskiptavina samstæðunnar í karfaflökun í góðgerðarskyni.

Að keppninni lokinni stóð Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, uppi sem sigurvegari. Ánafnaði hann Ljósinu verðlaunaféð, sem nam 350.000 krónum og kom frá fyrirtækjum þátttakendanna.