„Ég tjáði honum að við hefðum engar upplýsingar um þetta og ég vissi ekki til þess að nein samtöl hefðu átt sér stað um þetta efni,“ segir Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs. Bloomberg-fréttaveitan hafði eftir Kára í gær að hann eigi von á því að Íbúðalánasjóður tilkynni um breytingar á skilmálum útgefinna skuldabréfa sjóðsins með tilheyrandi kostnaði fyrir skuldabréfaeigendur í sumar þegar flestir væru í fríi. Tekið var fram að stjórn Íbúðalánasjóðs hafi ekki komið að máli við lífeyrissjóðinn vegna breytinganna. Kári vísar ætluðum breytingum hjá sjóðnum á bug og segir alfarið að um vangaveltur viðkomandi blaðamanns hafi verið að ræða.

Íbúðalánasjóður brást við fréttum Bloomberg í dag og sagði ekkert nýtt þar á ferðinni.

Kári segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag frétt Bloomberg um máli sjóðsins og samtalið við sig villandi.

Orðrétt segir hann:

„Hið rétta er að téður blaðamaður hafði samband við undirritaðan og skýrði frá því að samkvæmt hans heimildum stæði eitthvað í þessa veru til nú í sumar. Ég tjáði honum að við hefðum engar upplýsingar um þetta og ég vissi ekki til þess að nein samtöl hefðu átt sér stað um þetta efni.  Að okkar mati væri Íbúðalánasjóður með fulla og ótakmarkaða ábyrgð ríkisins. Greiðslufall hjá Íbúðalánasjóði  þýddi greiðslufall á öllum skuldum ríkisins og engar heimildir væru til einhliða breytinga á skilmálum. Ríkið yrði einfaldlega að standa við sínar skuldbindingar.  Þá væri erfitt að sjá ávinninginn af slíkum breytingum ef tilgangurinn væri að velta kostnaði við endurskipulagningu Íbúðarlánasjóðs yfir á skuldabréfaeigendur. Þeir væru, í gegnum lífeyrissjóðina, að stærstum hluta sömu einstaklingar og standa á bak við ríkissjóð, þ.e. almennir skattgreiðendur. Það eina sem hefðist upp úr slíkum aðgerðum væri að láta fólk á almennum vinnumarkaði taka á sig högg á meðan opinberum starfsmönnum væri hlíft. Það gætu varla verið góð skilaboð inn í komandi kjaraviðræður.“