Karl K.Karlsson, heildverslun hefur tekið við umboði fyrir Budweiser bjór á Íslandi. Budweiser er eitt þekktasta vörumerki í heimi og er i eigu stærsta bjórfyrirtækis Bandaríkjanna, Anheuser Busch, segir í fréttatilkynningu. Budweiser umboðið breikkar vöruval Karls K. Karlssonar með bjór en fyrirtækið er einnig með umboð fyrir Stellu Artois, Beck´s, Leffe, Löwenbrau og San Miquel.